Fyrir fjölmiðla

Fyrir fjölmiðla

Við bjóðum fjölmiðlafólk velkomið á flokksráðsfund Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem haldinn verður í Hljómahöll í Reykjanesbæ dagana 17. ágúst. 

Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á gusti@vg.is

Flokksráð hefur æðsta vald í öllum málefnum Vinstri grænna á milli landsfunda. Flokksráð mynda aðalmenn í stjórn, þingmenn og sveitarstjórnarfulltrúar hreyfingarinnar, formenn kjördæmisráða, formenn svæðisfélaga og fulltrúar ungliðahreyfingar flokksins og Eldri vinstri grænna. 

Félagar VG, svæðisfélög og stjórn geta sent inn ályktunartillögur sem eru teknar til umræðu og atkvæðagreiðslu á flokksráðsfundi.

Núverandi formaður VG er Guðmundur Ingi Guðbrandsson og núverandi varaformaður er Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir.

Laugardagurinn 17. ágúst

  • 9:00 – Opnun fundar og erindi Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur, varaformanns Vinstri grænna og bæjarfulltrúa á Akureyri.
  • 9:15 – Ræða Guðmundar Inga Guðbrandssonar, formanns Vinstri grænna og félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Við tökum vel á móti ykkur, en biðjum ykkur um að senda línu á gusti@vg.is með þeim tímasetningum sem þið teljið ykkur vilja vera með okkur. Aðgangsorð fyrir þráðlausa nettengingu verða aðgengileg á fundinum.

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, samskipta og viðburðarstjóra VG, svarar spurningum fjölmiðla í síma 898 3107.

Vegna viðtala við Guðmund Inga Guðbrandsson, vinsamlegast hafið samband við Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, aðstoðarmann félags- og vinnumálaráðherra í síma 690 1800.

Vegna viðtala við Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur hafið beint samband við hana í síma 866 2936.